Vinabekkir í Sunnulækjarskóla

Vikan 3. – 7. nóvember er sérstök vinabekkjavika í Sunnulækjarskóla.  Í þeirri viku stofnum við til sérstakra vinatengsla milli nemenda í eldri og yngri bekkjum skólans.  Þannig eignast allir nemendur í 5. bekk sérstakan vin í 10. bekk, allir í 4. bekk eignast vin í 9. bekk og svo koll af kolli.  Þessi vinatengsl eru svo ræktuð allan veturinn.  Eldri vinur sækir þann yngri og fylgir á ýmsa atburði s.s. söngstundir, jólaskemmtun og einnig á töfrasýninguna sem markaði upphaf vikunnar.

Í vikunni er einnig farið yfir eineltisyfirlýsingu Sunnulækjarskóla með öllum nemendum og mikilvægi vináttu tekin til umfjöllunar við ýmis tækifæri.

Á meðfylgjandi myndum má sjá vinabekkina 1. og 6. bekk hittast og vinna svo sameiginleg verkefni þar sem reynir á marga þætti samskipta, talaðs máls og ritunar.

Vinabekkir03Vinabekkir02Vinabekkir01