Verðlaun fyrir lokaverkefni í Tóbakslaus bekkur

7. GG í Sunnulækjarskóla var einn af níu hópum sem fengu verðlaun í keppninni Tóbakslaus bekkur. Keppnin var haldin meðal 7. og 8. bekkja í öllum grunnskólum landsins. Alls tóku 250 bekkir þátt í samkeppninni. Til að eiga möguleika á fyrstu verðlaunum þurftu bekkirnir að senda inn áhugavert efni tengt tóbaksvörnum og er verðlaunaupphæðin 5.000 krónur fyrir hvern nemanda í bekknum. Verkefnið sem þau sendu inn fólst í því að þau héldu fyrirlestur um tóbak og skaðsemi þess fyrir 6. og 9. bekk.
Við óskum 7. GG til hamingju með glæsilegan árangur.