Skólasetning Sunnulækjarskóla skólaárið 2020-2021

Grunnskólar Sveitarfélagsins Árborgar verða settir mánudaginn 24. ágúst 2020. Að þessu sinni verður skólasetning með óhefðbundnum hætti v/COVID-19. Meðfylgjandi eru upplýsingar um skipulag og tímasetningar í Sunnulækjarskóla.

Kl. 09:00        Nemendur í 2.−4. bekk, f. 2011 – 2013

Kl. 10:00        Nemendur í 5. – 7. bekk, f. 2008 – 2010

Kl. 11:00         Nemendur í 8.−10. bekk, f. 2005–2007

Gert er ráð fyrir stuttri samkomu í Fjallasal en síðan munu nemendur hitta umsjónarkennara. Vegna smitvarna er ekki mögulegt að taka á móti foreldrum á skólasetningu.

Nemendur 1. bekkjar mæta ekki við skólasetningu að þessu sinni.  Þeir verða boðaðir ásamt forráðamönnum til viðtals við umsjónarkennara.