Hádegisfundur fyrir foreldra og forráðamenn

Fimmtudaginn 15. ágúst næstkomandi er foreldrum og forráðamönnum nemenda Sunnulækjarskóla boðið til hádegis- og súpufundar í Fjallasal Sunnulækjarskóla.

Á fundinum mun Páll Ólafsson, félagsráðgjafi fjalla um reynslu sína af uppbyggingarstefnunni, sem einnig er kölluð „uppeldi til ábyrgðar“.  Uppbyggingarstefnan er sú leið sem höfð er að leiðarljósi í samskiptum og við ákvarðanatöku í Sunnulækjarskóla.

Fundurinn hefst kl. 12:00 stundvíslega og verður honum lokið kl. 13:00.  Á fundinum verður borin fram súpa úr eldhúsi Sunnulækjarskóla.

Skólastjóri