Góð gjöf til grunnskóla Árborgar

Gunnar Egilsson og Sæunn Lúðvíksdóttir komu færandi hendi í skólann okkar í morgun.  Þau gáfu grunnskólum Árborgar 15 taflborð og taflmenn til að hvetja til aukinnar skákiðkunar í skólunum.  Skák er vel til þess fallin að þroska gagnrýna hugsun og krefst þess að skákmaðurinn ígrundi hvern leik og hugsi hverja skákfléttu til enda.

Við þökkum góða gjöf.

Á meðfylgjandi mynd eru Birgir, skólastjóri, Björgvin, formaður skákfélags Selfoss og nágrennis, Gunnar Egilsson, Sæunn Lúðvíksdóttir, Magnús, skólastjóri og Einar, aðstoðarskólastjóri.