Gjöf frá Kiwanisklúbbnum Jörfa í Reykjavík

Sérdeild Suðurlands, Setrið Sunnulækjarskóla fékk nýlega styrk frá Kiwanisklúbbnum Jörfa í Reykjavík. Um er að ræða 250.000 kr. sem nýta á til kaupa á tækjabúnaði og námsgögnum.

Kristín Björk Jóhannsdóttir, deildarstjóri, veitti styrknum viðtöku í vikunni og kynnti starfsemina í Setrinu.

Við færum félögum í Kiwanisklúbbnum Jörfa okkar bestu þakkir fyrir veglega gjöf.