Dagarnir 1.-4. júní 2010


Vordagar:

Dagana 1. og 2. júní ætlum við að hafa sérstaka vordaga í Sunnulækjarskóla. Nemendur í
1.-4. bekk ljúka deginum á venjulegum tíma en 5.-7. bekkur kl.12:00 og 8.-9. bekkur kl.12:20.

Starfsdagur:
3. júní er starfsdagur vegna frágangs námsmats og nemendur mæta því ekki í skólann
þann dag.

Skólaslit
Verða 4. júní. Athöfnin verður í tvennu lagi, nemendur sem eru að ljúka 1. –4. bekk mæta kl 10:00 en nemendur sem eru að ljúka 5. – 9. bekk mæta kl. 11:00. Við hvetjum foreldra til að koma með börnum sínum á skólaslitin.

Vordagar


Dagana 1. og 2. júní ætlum við að hafa sérstaka vordaga í Sunnulækjarskóla. Fyrri
dagurinn er skipulagður sem sérstakur bekkja- eða árgangadagur þar sem kennarar
skipuleggja frágang, gönguferðir, gróðursetningu eða annað álíka.
Seinni daginn, 2. júní, verður “
Litríki vordagurinn”. Sá dagur einkennist af samvinnu
alls skólasamfélagsins, nemenda, starfsmanna og foreldra. Við óskum sérstaklega
eftir þátttöku foreldra þennan dag og biðjum þá að mæta með börnum sínum og taka
þátt í deginum Megin atriði þessa dags er 500 manna skrúðganga um nágrenni
skólans sem leggur af stað frá skólanum kl. 8:50 um morguninn og síðan leikir og
skemmtun eftir frímínútur og endað með grilluðum pylsum í hádeginu.


Starfsdagur
3. júní er starfsdagur vegna frágangs námsmats og nemendur mæta því ekki í skólann
þann dag.


Skólaslit
Skólaslit verða 4. júní. Athöfnin verður í tvennu lagi, nemendur sem eru að ljúka 1. –
4. bekk mæta kl 10:00 en nemendur sem eru að ljúka 5. – 9. bekk mæta kl. 11:00.
Við hvetjum foreldra til að koma með börnum sínum á skólaslitin.