Bókagjöf

Í síðustu viku fengum við góða gesti í heimsókn. 

Það voru Gils Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Árnessýslu, Halldóra S. Sveinsdóttir, formaður Bárunnar, stéttarfélags og Þór Hreinsson, þjónustustjóri stéttarfélaga á Suðurlandi. 

Tilefni heimsóknarinnar var að afhenda skólanum að gjöf sögu Alþýðusambands Íslands í tveim bindum. Fyrra bindið ber heitið Í samtök, en það síðara, Til velferðar. Sumarliði Ísleifsson, sagnfræðingur, skráði söguna.

Við þökkum höfðinglega gjöf og munum varðveita bækurnar á bókasafni skólans.