Stóra upplestrarkeppnin

Nemendur  7. bekkjar taka venju samkvæmt þátt í Stóru upplestrarkeppninni á þessu skólaári. Nemendur hafa æft framsögn leynt og ljóst frá degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember s.l. og í gær, þriðjudaginn 28. febrúar,  fóru fram svokallaðar bekkjarkeppnir þar sem nemendur fluttu ljóð og texta fyrir dómnefnd skólans.

Skemmst er frá því að segja að nemendur stóðu sig  með eindæmum vel og mega þeir vera stoltir af frammistöðu sinni. Það hefur verið einstaklega gaman að fylgjast með miklum framförum nemenda í framsögn og framkomu og óhætt er að segja að margir sætir sigrar hafi unnist  með þátttökunni því hugrekki og öryggi nemenda við að koma fram hefur einnig aukist til muna. Þó svo að aðeins sex nemendur hafi verið valdir til áframhaldandi þátttöku má segja að sigurvegararnir hafi verið mun fleiri.

Til hamingju nemendur í  7. bekk með glæsilega frammistöðu og við óskum auðvitað þeim; Ölmu Rún, Ásdísi, Bergdísi, Drífu Björt, Gabríel og Lilju Dögg innilega til hamingju og óskum þeim jafnframt góðs gengis í undankeppninni hér í skólanum og svo í aðalkeppninni þann 13. mars n.k.