Skólareglur
Skólareglur Sunnulækjarskóla
Almennar reglur –allir í Sunnulækjarskóla eiga að:
- Sinna hlutverki sínu
- Virða rétt annarra
- Koma fram af kurteisi
- Bera ábyrgð á eigum okkar og skólagögnum
Viðbrögð ef út af bregður:
- Kennari byrjar á að taka á málum og spyrja nemanda um hlutverk sitt og nemandinn fær tækifæri til að bæta sig.
- Stuðningsfulltrúi/kennari/starfsfólk leiðbeinir nemanda ef mál koma upp hjá þeim og láta umsjónarkennara vita.
- Deildarstjóri leiðbeinir nemanda og tekur við máli ef nemandi lætur ekki segjast.
- Ef málið er enn óleyst og nemandi lætur enn ekki segjast þá er máli vísað til aðstoðarskólastjóra.
Skýr mörk – Ófrávíkjanlegar grundvallarreglur:
|
Hegðun sem ógnar öryggi er óheimil |
Hegðun sem hindrar nám og kennslu er óheimil |
|
|
|
Hvað gerist ef ófrávíkjanlegar grundvallarreglur eru brotnar ?
Ef ófrávíkjanlegar reglur eru brotnar beitir kennari eða starfsmaður viðurlögum samstundis án umræðu og vísar þá máli til stjórnenda til úrvinnslu. Skólastjórnandi tekur ákvörðun um næstu skref. Skólastjórnandi skráir málið og úrvinnslu þess í dagbók nemenda í Mentor og sendir viðkomandi umsjónarkennara tölvupóst um úrvinnslu mála eða gerir honum grein fyrir því með öðrum hætti eins fljótt og unnt er.
Þetta tekur lengri tíma en að leiðrétta brot á almennri reglu, aðilar málsins þurfa að ná hugarró, áður en hægt er að byrja á að leysa alvarleg mál af þessu tagi og gera áætlun um úrbætur.
Hér að neðan eru nefnd viðurlög sem gripið er til ef þessar reglur eru brotnar.
Foreldrar fá ávallt að vita ef viðurlögum er beitt.
Viðurlögum beitt
· Áminning skráð og tölvupóstur sendur heim.
· Nemandi gerir samning og fær aðhaldsblað.
· Skrifleg skilyrði sett af skóla og heimili.
· Nemanda gert að mæta reglulega til eftirlits í ákveðinn tíma í framhaldi af settum skilyrðum.
· Unnið í einveru.
· Eftirlit fylgdarmanns í frímínútum og/eða kennslustund.
· Eftirseta.
· Nemandi mætir á reglulega fundi með foreldrum og farið yfir stöðuna.
· Annað.


