Leiðarljós
Leiðarljós starfsmanna Sunnulækjarskóla er:
- að hver nemandi skólans þroskist og dafni í námi og starfi á eigin forsendum.
- að hver nemandi skólans njóti virðingar og væntumþykju.
- að hver nemandi skólans öðlist sterka sjálfsmynd og áræði sem gefi honum þrek og þor og stuðli að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska.
- að þroska með hverjum nemanda trausta siðferðiskennd sem gerir hann að hæfum og farsælum þjóðfélagsþegn.
- að skapa skólasamfélag sem einkennist af samvinnu og gagnkvæmu trausti þeirra sem það mynda.