Einelti
Aðgerðaráætlun Sunnulækjarskóla gegn einelti og ofbeldi
Nemendur og starfsmenn í Sunnulækjarskóla eru sammála um að einelti og annað ofbeldi verði ekki liðið í skólanum. Leitað verður leiða til að fyrirbyggja einelti og ofbeldi í skólanum og leysa á farsælan hátt þau mál sem upp koma. Sunnulækjarskóli á að vera öruggur vinnustaður þar sem öllum á að líða vel.
Skilgreining
Einelti er síendurtekið, langvarandi ofbeldi, andlegt eða líkamlegt, sem stýrt er af einstaklingi eða hópi og beinist að ákveðnum einstaklingi sem ekki er fær um að verja sig.
Einelti getur verið:
· Líkamlegt: barsmíðar, spörk, hrindingar, skemmdarverk
· Munnlegt: uppnefni, niðrandi athugasemdir, endurtekin stríðni
· Skriflegt: bréfasendingar, rafræn skeyti s.s. sms eða tölvupóstur og veflægt, s.s blogg eða samskiptasíður
· Óbeint: neikvæð líkamstjáning, baktal, útskúfun eða útilokun úr félagahópi.
Einstaklingur sem verður fyrir einelti eða ofbeldi segir oft ekki frá því heldur skammast sín og kennir sjálfum sér jafnvel um. Þess vegna er mjög áríðandi að allir þekki einkenni eineltis.
Hugsanleg einkenni gætu verið ef nemandinn:
- er hræddur við að ganga einn í skólann eða heim
- vill ekki fara í skólann
- kvartar undan vanlíðan á morgnana
- hættir að sinna náminu, einkunnir lækka
- fer að koma heim með rifin föt og/eða skemmdar námsbækur
- byrjar að stama, missir sjálfstraustið
- leikur sér ekki við önnur börn
- neitar að segja frá hvað amar að
- kemur heim með marbletti eða skrámur sem hann getur ekki útskýrt
- verður árásargjarn og erfiður viðureignar
- kemur heim í öllum hléum í skólanum
- vill ekki taka þátt í félagsstörfum í skólanum
Mikilvægt er að foreldrar og starfsmenn séu á varðbergi og geri viðvart ef grunur vaknar um einelti.
Forvarnir
Einn mikilvægasti þáttur í að vinna gegn einelti eru forvarnir. Þær hafa að markmiði að vinna með viðhorf, samskipti og aukinn skilning skólasamfélagsins á því hvað einelti er. Með öflugum forvörnum má draga úr líkum á að einelti eigi sér stað.
Eineltisyfirlýsing
- Á haustin er eineltisyfirlýsing Sunnulækjarskóla lesin og rædd með hverjum bekk og hún undirrituð.
Bekkjarfundir
- Bekkjarfundir eru haldnir reglulega í hverjum umsjónarhóp. Megin markmið bekkjarfunda er að skapa öruggara andrúmsloft þar sem traust og samvinna ríkir.
Tengslakannanir
- Tengslakannanir eru lagðar fyrir nemendur að minnsta kosti tvisvar sinnum á ári. Umsjónarkennarar fá með því betri yfirsýn yfir félagstengsl nemenda í sínum hóp en láta deildarstjóra og námsráðgjafa jafnframt vita ef grunur um einelti vaknar.
Sjálfsmat nemenda
- Tvisvar á vetri gera nemendur sjálfsmat og skýra frá eigin líðan. Komi fram vísbendingar um einelti við slíkt mat gerir umsjónarkennari deildarstjóra og námsráðgjafa viðvart.
Vinatengsl milli árganga
- Árlega eru skipulögð vinatengsl milli yngri og eldri nemenda í skólanum. Á söngstundum, litlu jólunum og við önnur tækifæri eru þessi vinatengsl virkjuð og eldri nemendur sækja sinn yngri vin. Þessi tengsl eru líka til þess fallin að auka samheldni og samstöðu nemenda skólans og draga úr líkum á einelti.
Uppeldi til ábyrgðar
- Nemendum er kennt að þegar ágreiningur kemur upp þeirra á milli eru málin rædd og reynt að komast að málamiðlun og sátt. Til þess notum við tæki úr verkfærakistu Uppeldis til ábyrgðar, eins og sáttarborðið, uppbyggingaráætlun og þríhornið. Geri nemandi mistök fær hann tækifæri til að bæta fyrir þau.
Skipulagt starf í frímínútum unglinga
- Í frímínútum elstu árganga skólans er skipulagt starf þar sem umsjónarhópar skiptast á að sinna verkum eins og tónlistarflutningi, sjá um spil og töfl, þrif í mötuneyti og að halda röð og reglu. Slíkt eykur ábyrgð elstu nemenda á skólanum sínum og er til þess fallið að minnka líkur á einelti í þeirra hópi.
Aðgerðaráætlun
Komi upp einelti er fyrirliggjandi aðgerðaráætlun þar sem skilgreind eru ýmis úrræði sem hægt er að styðjast við. Eineltismál geta verið ólík innbyrðis og þarf þá að vega og meta hverju sinni hvaða leið sé vænleg til árangurs. Nokkrum megin reglum er þó alltaf fylgt.
- Vitneskja berst um einelti til starfsfólks skólans frá nemanda, foreldra eða öðrum. Málinu er vísað til umsjónarkennara og/eða eineltisteymis sem er skipað af deildarstjóra og námsráðgjafa. Ávallt skal gæta trúnaðar við meðferð mála.
- Ef grunur er um einelti eru upplýsingarnar skráðar í Árveknilistann.
- Tekin eru viðtöl við þolanda og geranda/gerendur ef um einelti er að ræða. Haft er samband við foreldra og þeir settir inn í málið.
- Unnið er úr upplýsingum og þeim komið til kennara og starfsfólks skólans sem koma að viðkomandi nemendum. Gera þarf áætlun í samráði við umsjónarkennara um hvernig tekið verði á málinu í bekknum.
- Málinu er fylgt eftir með reglulegum viðtölum þar til sýnt er að eineltið er ekki lengur fyrir hendi. Haft er reglulegt samband við foreldra svo þeir geti fylgst með gangi mála.
- Allar upplýsingar og allt sem gert er skal skrá jafn óðum í Árveknilistann þannig að allt ferlið sé skráð og geymt.
- Ef ekki gengur að uppræta eineltið innan skólans þá er málinu vísað til Nemendaverndarráðs sem tekur ákvörðun um framhaldið.
Það sem þarf að hafa í huga þegar unnið er með eineltismál;
- Tryggja þarf öryggi þolanda og afla góðra upplýsinga um málið eins fljótt og hægt er. Ekki á að ræða við þolanda í viðurvist annarra barna og varast skal að gefa gerendum kost á að hópa sig saman í varnarstöðu.
- Leita skal eftir upplýsingum frá öðru starfsfólki skólans og foreldrum; hvar, hvenær, hvernig og hver/hverjir áttu hlut að máli.
- Þolandi og foreldrar hans eiga að fá stuðning. Þolandinn á að fá að vita að eineltið sé ekki honum að kenna.
- Árangursríkast er að tala við gerendur einn og einn í senn.
- Þegar talað er við gerendur á að gera þeim ljóst að þeir verði að hætta eineltinu. Sá sem ræðir við gerendur á að sýna þeim kurteisi, varast skammir en ganga út frá því að þeir bæti ráð sitt.
- Þegar foreldrar gerenda eru kallaðir til á að leggja áherslu á að ná góðu samstarfi við þá. Gera skal ráð fyrir að foreldrarnir vilji ekki að barn þeirra leggi aðra í einelti. Foreldrar eiga oft erfitt með að trúa að barn þeirra hagi sér þannig.
- Þegar nemandi leitar hjálpar vegna eineltis eða ofbeldis verður að koma í veg fyrir að hann verði fyrir hefndaraðgerðum frá gerendum.
Áætlun umsjónarkennara
Hugmyndir að verkefnum fyrir bekkjarkennarann til að vinna með í bekknum sínum. Ávalt stendur honum til boða að hafa samráð og samvinnu með eineltisteyminu.
- einstaklingsviðtöl og bekkjarfundir
- fjölbreytt hópvinna
- koma á fót vinahópum, jafnvel í samstarfi við foreldra
- fræðsla um samskipti og einelti
- hlutverkaleikir
- bækur
- myndbönd


