Nemendur styrkja sjóð Selfosskirkju

Nokkrir 8. bekkingar í Sunnulækjarskóla ákváðu að leggja styrktarsjóð Selfosskirkju lið og seldu mandarínur og piparkökur á kaffistofu starfsfólks. Verkefnið unnu þær Helena, Ísabella Sara, Karen Lind og Katrín Birna í 8. ÞMB í tengslum við þemadaga um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna en þær vinna út frá markmiðinu um aukinn jöfnuð. Þær útbjuggu einnig vídeó til að hvetja fólk til að gefa jólaföt til Rauða krossins eða leggja inn á styrktarreikning Selfosskirkju, Sjóðinn góða, og hafa þær fengið góð viðbrögð við þessu frábæra framtaki. Vídeóið er að finna á þemasíðu skólans, sunnulaekjarskoli.weebly.com, og birtist einnig á Facebook.