Laust starf íþróttakennara

Vegna fæðingarorlofs vantar íþróttakennara til starfa við Sunnulækjarskóla frá 1. apríl til loka skólaárs. Meðal kennslugreina eru íþróttir á yngsta- og miðstigi og dans á yngsta stigi.

Nánari upplýsingar má fá hjá skólastjóra í síma 480-5400 og á vefsíðu skólans: http://www.sunnulaekjarskoli.is

Umsóknarfrestur er framlengdur til 18. mars 2018.

Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum sendist Birgi Edwald, skólastjóra, birgir@sunnulaek.is.

Skólastjóri