Kakófundur foreldrafélagsins í kvöld!!!

Kakófundinum sem frestað var sl. þriðjudag v. veðurs verður haldinn í kvöld kl 20:00 í Fjallasal Sunnulækjarskóla en erindið er opið öllum.

Kristín Tómasdóttir, rithöfundur heldur fyrirlesturinn „sterkari sjálfsmynd“ þar sem hún fer yfir það hvernig við sem foreldrar getum haft jákvæð áhrif á sjálfsmynd barnanna okkar. Kristín mun taka fyrir hugtakið sjálfsmynd, hvað það merkir og hvernig við getum lært að þekkja og kortleggja sjálfsmynd okkar og barnanna okkar. Þá gefur hún nokkur ráð til foreldra um hvernig hægt sé að hafa áhrif á og fyrirbyggja að sjálfsmynd barnanna okkar þróist í neikvæða átt.

Kristín Tómasdóttir hefur skrifað sex sjálfstyrkingarbækur fyrir börn og unglinga og rekur sjálfstyrkingarfyrirtækið „Út fyrir kassann“ með Bjarna Fritzsyni. Kristín er með BA próf í sálfræði og kynjafræði, hún er með MPA próf í stjórnun og stefnumótun í opinberri stjórnsýslu og leggur lokahönd á meistaranám í Fjölskyldumeðferð.

Likur á facebook síðu viðburðarins er: https://www.facebook.com/events/588115311988352/