Innritun í grunnskóla skólaárið 2015−2016

Innritun í grunnskóla skólaárið 2015−2016

Innritun barna sem eru fædd árið 2009 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2015 fer fram 18.−27. febrúar næstkomandi.

Hægt er að innrita rafrænt á Mín Árborg eða á eyðublöðum sem eru aðgengileg á heimasíðum grunnskólanna og í Ráðhúsinu. Þeim umsóknum á að skila í viðkomandi skóla.

Upplýsingar um skólahverfi hvers skóla er að finna á www.arborg.is Nánari upplýsingar er hægt að fá í grunnskólunum og á skrifstofu fræðslusviðs.

Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri       

Sunnulækjarskóli

Vallaskóli