Fræðslufundur um nýja aðalnámskrá á Selfossi

Ný aðalnámskráin boðar talsverðar breytingar og uppstokkun á starfsháttum og inntaki náms á Íslandi. Af þeim sökum standa Heimili og skóli fyrir kynningarfundum víðs vegar um landið árið 2013 þar sem foreldrum er boðið að koma og fræðast um nýja námskrá.

Á kynningunum verður farið í eftirfarandi atriði: 

•             Grunnþættir menntunar              

•             Ný og fjölbreytt vinnubrögð        

•             Hæfni og lykilhæfni

•             Nýtt námsmat

•             Skörun hæfniþrepa

 

Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 10. september kl. 19.30 í Fjallasal Sunnulækjarskóla. Samhliða fundunum útbúum við fjölbreytt fræðsluefni sem við birtum á vef samtakanna (www.heimiliogskoli.is/adalnamskra) og bendum á annað gagnlegt efni.