9. bekkur
Umsjónarkennarar 9.bekkja
9.ÞMB – Þuríður M. thuridurm@sunnulaek.is
9.EAT – Elísabet Auður elisabetaudur@sunnulaek.is
Námstilhögun
Nemendum í 9. bekk er kennt í tveimur umsjónarhópum í opnu kennslurými.
Íslenska: Elísabet Auður Torp, Þuríður M. Björnsdóttir, Hermann Örn Kristjánsson
Stærðfræði: Elísabet Sif Helgadóttir, Þuríður M. Björnsdóttir,Bryndís Arnardóttir
Enska: Tómas Davíð Ibsen Tómasson
Danska: Sonja Elídóttir
Náttúrufræði: Steinunn H. Eggertsdóttir
Íþróttir: Sigurður Einar Einarsson
Lífsleikni: Umsjónakennarar
Samfélagsfræði: Umsjónakennarar
Sund: Ágústa Tryggvadóttir
Þar að auki koma fleiri kennarar að lækjar- og valtímakennslu. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám og fjölbreytta kennsluhætti m.a. í formi; hópvinnu, skapandi vinnu, þrautalausna, leikja og áhugasviðsverkefna. Áherslur í vetur verða á hópvinnu og félagsfærni, sjálfstæði í námi og sjálfsábyrgð. Verkefnaskil verða með fjölbreyttu sniði og má þar nefna: glærukynningar, hópaskil, hefðbundin verkefni og fleira. Meðferð heimilda og sjálfstæði í vinnubrögðum verður til þjálfunar í vetur. Kennarar vinna saman í teymi og nemendur vinna ýmist í sínum hóp eða í blönduðum hópum innan árgangsins.
Dagsskipulag
Kennsla hefst kl. 8:10. Byrjað er á nafnakalli Frímínútur eru kl. 09:30-09:50 og gefst þá tími til að borða nesti sem þau koma með að heiman. Frímínútur eru aftur kl. 11:10 – 11:20. Matartíminn er frá kl. 12:00-12:30. Nemendur hafa val um að vera í mataráskrift eða koma með nesti að heiman.
Heimanám
Nemendur fá ákveðið heimanám í hverri viku. Ætlast er til að nemendur skrái hjá sér heimanámið niður í skóladagbók en einnig er hægt að sjá heimanámið á http://mentor.is.
Námsmat
Reglubundið námsmat og einstaklingsbundin skráning á námsframvindu er mjög mikilvæg. Námsmat í Sunnulækjarskóla fer ekki einungis fram í lok námstímans heldur er það einn af föstum þáttum skólastarfs. Þær matsaðferðir sem beitt er endurspegla áherslur í kennslu og meta alla þætti námsins, framfarir, þekkingu, skilning og leikni. Símat, jafningjamat, kannanir, próf og sjálfsmat eru dæmi um matsaðferðir. Við annaskil er tekið saman það sem metið hefur verið yfir önnina og það nýtt til að gefa foreldrum innsýn í stöðu og vinnu nemandans. Í niðurstöðu námsmats kemur fram að hvaða markmiðum vinnan hefur beinst og hvernig hefur tekist að ná þeim markmiðum. Notaðir eru markmiðslistar fyrir hverja námsgrein. Niðurstöður námsmats birtast í formi markmiðslista, umsagnar og einkunna. Hver nemandi skólans á námsmatsmöppu sem skólinn leggur honum til einu sinni við upphaf skólagöngu og hefur hún það hlutverk að geyma námsmatsgögnin. Einnig er haldið utan um einkunnir í mentor.


