10. bekkur

Umsjónarkennarar 10.bekkja 

10.HÖK – Hermann Örn  hermann@sunnulaek.is

10.GH – Guðbjörg H.      gudbjorghal@sunnulaek.is 

 

Námstilhögun

Nemendum í 10. bekk er kennt í tveimur umsjónarhópum í opnu kennslurými.

Íslenska: Elísabet Auður Torp, Guðbjörg Halldórsdóttir, Hermann Örn Kristjánsson

Stærðfræði: Bryndís Arnardóttir, Elísabet Sif Helgadóttir, Pálmi Agnar Franken

Enska: Tómas Davíð Ibsen Tómasson

Danska: Sonja Elídóttir

Náttúrufræði: Steinunn H. Eggertsdóttir

Íþróttir: Sigríður Ósk Harðardóttir, Sigurður Einar Einarsson

Lífsleikni: Guðbjörg Halldórsdóttir, Hermann Örn Kristjánsson

Samfélagsfræði: Guðbjörg Halldórsdóttir, Hermann Örn Kristjánsson

Sund: Sigurður Einar Einarsson

Þar að auki koma fleiri kennarar að lækjar- og valtímum. Áhersla er á að nemendur beri ábyrgð á eigin námi og gera þeir sér námsáætlanir fyrir hverja viku eða fá þær afhentar frá kennurum. Mikilvægt er að nemendur haldi áætlun, jafnvel þó að um forföll sé að ræða hjá nemendum og/eða kennurum. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám og fjölbreytta kennsluhætti m.a. í formi; hópvinnu, skapandi vinnu, þrautalausna, leikja og áhugasviðsverkefna. Áherslur í vetur verða á hópvinnu og félagsfærni, sjálfstæði í námi og sjálfsábyrgð. Verkefnaskil verða með fjölbreyttu sniði og má þar nefna: glærukynningar, hópaskil, hefðbundin verkefni og fleira. Meðferð heimilda og sjálfstæði í vinnubrögðum verður til þjálfunar í vetur. Kennarar vinna saman í teymi og nemendur vinna ýmist í sínum hópi eða í blönduðum hópum innan árgangsins.

Dagsskipulag

Kennsla hefst kl.8:10. Byrjað er á nafnakalli. Frímínútur eru kl.9:30 -9:50 og gefst þá tími til að borða nesti sem þau koma með að heiman. Hádegishlé er frá kl.12.00-12:30. Nemendur hafa val um að vera í mataráskrift eða koma með nesti að heiman.

Heimanám

Nemendur fá ákveðið heimanám í hverri viku. Auk þess geta þeir þurft að vinna að vikuáætlun sinni heima ef þeim tekst ekki að ljúka henni í skólanum. Heimanámið skrifa nemendur niður í Skólakompu en einnig er hægt að sjá heimanámið á http://mentor.is

Námsmat

Reglubundið námsmat og einstaklingsbundin skráning á námsframvindu er mjög mikilvæg. Námsmat í Sunnulækjarskóla fer ekki einungis fram í lok námstímans heldur er það einn af föstum þáttum skólastarfsins. Þær matsaðferðir sem beitt er endurspegla áherslur í kennslu og meta alla þætti námsins, framfarir, þekkingu, skilning og leikni. Símat, jafningjamat, kannanir, próf og sjálfsmat eru dæmi um matsaðferðir. Við annaskil er tekið saman það sem metið hefur verið yfir önnina og það nýtt til að gefa foreldrum innsýn í stöðu og vinnu nemandans. Í niðurstöðu námsmats kemur fram að hvaða markmiðum vinnan hefur beinst og hvernig hefur tekist að ná þeim markmiðum. Notaðir eru markmiðslistar fyrir hverja námsgrein. Niðurstöður námsmats geta birst í formi markmiðslista, umsagnar og einkunna. Hver nemandi skólans á námsmatsmöppu sem skólinn leggur honum til einu sinni við upphaf skólagöngu og hefur hún það hlutverk að geyma námsmatsgögnin. Einnig er haldið utanum einkunnir í Mentor.