1. bekkur

Umsjónarkennarar við 1. bekk 

Íris Huld    irishuld@sunnulaek.is

Tinna Rut   tinnarut@sunnulaek.is

Þóranna     thoranna@sunnulaek.is

 

Námstilhögun

Nemendum í 1. bekk er kennt í þremur umsjónarhópum á opnu kennslurými. Umsjónarkennarar eru þrír. Umsjónarkennarar vinna saman í teymum, bera sameiginlega ábyrgð á öllum nemendum 1. bekkjar og skipta þeim í hópa eftir verkefnum hverju sinni.

Aðaláherslan er lögð á lestrarkennslu og lestrarfærni. Strax í upphafi skólagöngu er stafakunnátta nemenda könnuð og er þeim skipt í hópa eftir niðurstöðunum. Hver kennari tekur að sér einn hóp og skipuleggur vinnu hans á fjölbreyttan hátt, með stöðvavinnu, hringekju og skapandi verkefnum. Hópaskipting endurskoðuð með reglulegu millibili og færast nemendur þá á milli hópa eftir því sem við á, en kennari er alltaf með sama hóp. Þannig er passað uppá að nemendur fái verkefni við hæfi. Í stærðfræði er fyrst unnið bekkjarskipt, en þegar líður á veturinn er nemendum skipt í hópa miðað við kunnáttu og skilning. Hver kennari sér um að skipuleggja kennslu fyrir sinn hóp. Kristinfræði, samfélagsfræði, náttúrufræði og lífsleikni eru kenndar í þemum. Heimilisfræði, textíl, myndlist, upplýsinga- og tæknimennt og smíði eru í höndum umsjónarkennara og fléttast þær námsgreinar saman við aðra vinnu.

Daglega söfnumst við saman í krók. Þar þjálfast nemendur í gagnrýnni hugsun, að hlusta á aðra og tjá sig í hóp og styrkja eigin persónu.

Hópvinna er notuð í því skyni að þjálfa nemendur í samskiptum, tillitsemi og í að virða skoðanir annarra. Valtímar eru öðru hvoru í lok dags og þar fá nemendur tækifæri til að þroska félagsfærni, sjálfstæði og ábyrgð. Valið felur í sér námstengda vinnu eða leik sem tengist áhugasviði nemenda.

Dagsskipulag

Kennsla hefst kl. 8:10. Mikilvægt er að allir mæti á réttum tíma því alltaf er erfitt að koma inn þegar skipulögð vinna er hafin.

Í heimakróknum er fyrst skráð mæting og síðan er farið yfir skipulag dagsins en það er í myndum, rituðu máli og munnlegt. Ef sérstök skilaboð eru til nemenda er heimakrókurinn gjarnan notaður til þess.

Frímínútur eru kl. 9:30-9:50 og þá eru nemendur úti, nestistími er að þeim loknum. Nemendur geta fengið keypta mjólk og/eða ávexti í skólanum. Skráning fer fram hjá ritara skólans.

Seinni frímínútur eru kl. 11:10-11:30.

Matartíminn er 30 mínútur frá kl. 12:50-13:20. Nemendur hafa val um að vera í mataráskrift, koma með nesti að heiman eða fara beint heim að borða.

Skólavistun hefst að loknum hádegisverði.

Þema

Þemavinna tekur fyrir ákveðið viðfangsefni og hinar ýmsu hliðar á því kannaðar. Námsgreinar eru samþættar og geta fleiri kennarar aðrir en umsjónarkennarar komið að kennslunni.  Þarna hafa nemendur tækifæri til að koma að sínum áhugasviðum og hæfileikum.

Ýmsar leiðir eru farnar til að nálgast viðfangsefnið og er afraksturinn margbreytilegur. Í þessu skipulagi eru markmið aðalnámskrár grunnskóla höfð að leiðarljósi.

Haustönn

Uppeldi til ábyrgðar

Skólinn og umhverfið Haustið          

Miðönn

Uppeldi til ábyrgðar

Jólin                

Álfaþema                

Vorönn

Uppeldi til ábyrgðar Líkaminn 

Vorið og fuglarnir

 

Heimanám

Nemendur fá lestrarbækur fljótlega eftir að skóli hefst og eru hvattir til að lesa heima með foreldrum á hverjum degi. Kvittanahefti fylgir með lestrarbók. Þar er skráður lestur dagsins. Nemendur eru misjafnlega vel í stakk búnir til að vinna heimanám. Því er ofur eðlilegt að sumir nemendur fái heimanám fyrr en aðrir og heimavinna getur verið mismunandi hjá einstaklingum.   

Námsmat

Reglubundið námsmat og einstaklingsbundin skráning á námsframvindu er mjög mikilvæg. Námsmat í Sunnulækjarskóla fer ekki einungis fram í lok annar heldur er það einn af föstum þáttum skólastarfs, órjúfanlegt frá námi og kennslu. Þær matsaðferðir sem beitt er endurspegla áherslur í kennslu og meta alla þætti námsins, framfarir, þekkingu, skilning og leikni. 

Símat, kannanir, próf og sjálfsmat eru dæmi um matsaðferðir. Við annaskil er tekið saman það sem metið hefur verið yfir önnina og það nýtt til að gefa foreldrum innsýn í stöðu og vinnu nemandans.

Í niðurstöðu námsmats kemur fram að hvaða markmiðum vinnan hefur beinst  og hvernig hefur tekist að ná þeim markmiðum. Niðurstöðurnar birtast í formi umsagnar og einkunna. Í lestri og stærðfræði eru notaðar kannanir og próf til að fá yfirsýn yfir stöðu nemandans.

Hver nemandi skólans á námsmatsmöppu sem skólinn leggur honum til við lok fyrstu annar og hefur hún það hlutverk að geyma námsmatsgögnin. Við lok hverrar annar sendir umsjónarkennari námsmatið heim til nemenda nokkrum dögum fyrir foreldraviðtal.