Skákkennsla grunnskólabarna

Frá skáknámsskeiði í Fischersetri

Fischersetrið á Selfossi mun í samstarfi við Sveitarfélagið Árborg og Skákskóla Íslands standa fyrir skákkennslu fyrir grunnskólabörn í Fischersetrinu á laugardögum frá kl. 11.00–12.30. Yfirumsjón með kennslunni hefur Helgi Ólafsson, stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands.

Alls verða þetta 8 laugardagar og fyrsti tími verður laugardaginn 13. október n.k.
Þeir sem hafa áhuga á skákkennslunni eru beðnir um að mæta u.þ.b. 30 mínútum áður en fyrsta æfing hefst til að ganga frá skráningu og greiðslu nemendagjalds sem er kr. 3.500 fyrir þessi 8 skipti.

Varðandi frekari upplýsingar þá vinsamlegast hringið í síma 894-1275 eða sendið tölvupóst á netfangið fischersetur@gmail.com

Fischersetrið á Selfossi.